Segir eygló pólitíska liðleskju

Björn Valur Gíslason segir velferðarráðherra verklausan og málaskrá bæði þunna og grunna.

Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, fer hörðum orðum um velferðarráðherra Eygló Harðardóttur á bloggi sínu.

„Eygló Harðardóttir er átakanlega lélegur ráðherra,“ eru upphafsorð færslu Björns Vals Gíslasonar.

Hann heldur áfram: „Hún kemur bókstaflega engu í verk og það litla sem frá henni kemur er  tóm vitleysa. Málaskrá hennar á Alþingi er bæði þunn og grunn. Svo kennir hún öllum öðrum um verkleysi sitt.“

Björn Valur tengir við vefslóðir til að styrkja mál sitt. Ráða má af færslunni að það hafi farið sérlega illa í varaformanninn þegar Eygló sneri vopnum í höndum fyrrum formanns VG í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi. Steingrímur J. Sigfússon, vinur Björns Vals og fyrrum formaður VG, spurði þá út í lausnir ráðherra vegna fólksflótta og húsnæðisvandamáls ungs fólks en Eygló svaraði eins og segir á visir.is:  „Síðan vil ég líka benda á að menn hafa rætt um áhyggjur vegna möguleika ungs fólks á að taka lán. Það tengist að vísu náttúrulega neytendalánalöggjöfinni sem háttvirtur þingmaður [Steingrímur J.] stóð að og talaði fyrir á sínum tíma sem hefti mjög möguleika fólks á að fá lán.“

Varaformaðurinn enda bloggfærslu sína um Eygló:

„Nú síðast telur hún vanda ungs fólks þann helstan að geta ekki kaffært sig í verðtryggðum lánum á okurvöxtum og allt sé það Steingrími J. Sigfússyni að kenna.
Önnur eins liðleskja hefur held ég aldrei áður setið í ríkistjórn á Íslandi en Eygló Harðardóttir.“