Segir esb-umsókn enn vera í gildi

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar ávarpaði evrópska þingmenn á Evrópuþinginu í Strasbourg í gær og fór þar yfir stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. Hann sagði að aðildarumsóknin hafi ekki verið dregin til baka þótt ríkisstjórnin hafi óskað eftir að Ísland yrði ekki ávallt talið með þegar fjallað væri um umsóknarríki.


Aðildarumsóknin væri því enn í gildi og ný ríkisstjórn gæti tekið upp þráðinn í aðildarsamningum. Hann upplýsti að Samfylkingin hefði skuldbundið sig til þess að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna kæmist hún í ríkisstjórn en þannig yrði skýrt umboð sótt til áframhaldandi aðildarviðræðna.


Árni Páll benti á að þótt sumir telji að íslenska krónan hafi gagnast vel í eftirmálum hrunsins þá þurfi að horfa á heildarmyndina. Ísland sé fast höftum, laun séu lægri talin í alþjóðlegum gjaldmiðli og lánakostnaður Íslendinga sé sá hæsti í Evrópu. Ljóst þykir að til lengri tíma reynist smáríkjum vel að vera hluti af stærra myntsamstarfi þegar þau glíma við efnahagskreppu.