Sigurður G. Guðjónsson lögmaður lætur Ríkisútvarpið, Rögnu Árnadóttur, dómara og fleiri hafa það óþvegið í pistli sem hann birtir á eigin fésbók í morgun.
Yfirskrift pistils Sigurðar er „Sýndar mannréttindi“ og tengir hann við grein Guðmundar Guðbjartssonar í Mogga dagsins.
„Embætti sérstaks saksóknar sem dómsmálaráðherrann Björn Bjarnason ýtti úr vör illuheilli fyrir réttarríkið í desember 2008 átti að hafa lokið störfum í árslok 2014. Ragna Árnadóttir, sem var um tíma dómsmálaráðherra í vinstri stjórn Jóhönnu og Steingríms og mokaði fé í embætti sérstaks saksóknara, taldi að með tilliti til mannréttindasjónarmiða að öllum refsimálum sem hinum sérstaka var upphaflega falið að rannsaka yrði lokið fyrir árslok 2014. Nú er árið 2015 að renna í aldannaskaut og aldrei það kemur til baka,“ skrifar lögmaðurinn í upphafi færslu sinnar.
„Við komandi áramót losnar þjóðin líka við embætti sérstaks saksóknara. Sennilega mun enginn sakna þess, nema fréttastofa Rúv og verktakarnir sem grætt hafa á tilvist embættis sérstaks saksóknara,“ segir hann svo.
„Embættið hefur á hinum skamma líftíma orðið uppvíst af fleiri og alvarlegri brotum gegn réttindum sakaðra manna en dæmi eru um hér á landi,“ segir svo er geta verður þess að Sigurður hefur varið bankamenn sem hafa tapað málum og verið dæmdir í fangelsi.
Þá tekur lögmaðurinn Sigurður G. að lokum undir gagnrýni sem heyrst hefur úr herbúðum Jóns Steinars Gunnlaugssonar:
„Brot á mannréttindum þeirra einstaklinga sem valdheimildir embættisins taka til hafa almennt ekki skipt dómstóla þessa lands nokkru máli við refsiákvörðun. Auk þess sem afkastamiklir dómendur virðast frekar bundnir af almenningsáliti en efnis- og formreglum laga, eins og ágæt grein Guðmundar Guðbjartssonar í Mogga dagsins ber með sér.“