Segir ekkert um góða háttsemi kennara

Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi á Akureyri, sem beitti sér nokkuð fyrir því á sínum tíma að brugðist yrði við ummælum Snorra í Betel á bloggsíðu hans, segir að dómurinn segi ekkert um hvort háttsemi Snorra sem kenna hafi verið ásættanleg. Logi kallaði skrif Snorra á sínum tíma hatursskrif.

„Dómurinn er endanlegur um þetta tiltekna mál, en segir svo sem ekkert um það hvort svona háttsemi er ásættanleg hjá barnakennara. Vandamálið er að heimild til uppsagnar vegna háttsemi utan starfs er ekki nógu skýr í kjarasamningi. Og eins furðulegt og það nú er, þá gera lög engar kröfur um að grunnskólakennarar gæti athafna sinna utan starfs,” segir Logi Már.

Akureyrarbær sagði Snorra upp í kjölfar ummæla sem talin voru geta skaðað samkynhneigða nemendur. Snorri vann málið endanlega í gær en Hæstiréttur dæmdi þá uppsögn bæjarins ólöglega. Er viðbúið að Akureyrarbær þurfi að greiða Snorra háa fjárhæð á grunni ólögmætrar uppsagnar.

Logi segir að þótt lög geri engar kröfur um að grunnskólakennarar gæti athafna sinna utan starfs þá geri lög kröfur til m.a. framhaldsskóla- og háskólakennara að þeir aðhafist ekkert utan starfs sem geti orðið þeim til álitshnekkis eða varpi rýrð á starf þeirra.

“Mér finnst því fullt tilefni til að Alþingi skoði vandlega hvort er ekki rétt að tryggja að kröfur til barnakennara séu a.m.k. sambærilegar við þær sem gilda um kennara fullorðinna, og aðra ríkisstarfsmenn,” segir Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri og bæjarfulltrúi.