Segir dylgjur kristins vera óþolandi

Ólafur Valsson kaupfélagsstjóri í Árneshreppi á Ströndum segir dylgjur í Kristni H. Gunnarssyni óþolandi, en þetta er haft eftir honum á ruv.is.
 
Kristinn ræddi mikla lögheimilisflutninga fyrir kosningar í Árneshreppi á Ströndum í Morgunútvarpi Rásar tvö í gær og spurði þá meðal annars hver borgaði framfærslu Ólafs Valssonar og konu hans Sifjar Konráðsdóttur; kaupfélagið hefði ávallt verið rekið með tapi. Með því virtist hann ýja að því að þau fengju greiðslur frá andstæðingum Hvalárvirkjunar, en hún er aðaldeilumálið í hreppnum.
 

Ólafur sagði í Morgunútvarpinu í morgun að alltaf hafi verið ljóst að rekstur verslunarinnar í vetrarmánuðina stæði ekki undir sér: „Ég get alveg unnið fullt annað heldur en að reka þessa verslun. Og ég hef gert það. Þannig að þetta eru náttúrulega bara einhverjar dylgjur sem að eru algerlega óþolandi í sjálfu sér. En segja nú miklu meira um þann sem lætur þær út úr sér heldur en nokkurn annan,“ segir Ólafur á vef hins opinbera, en hann er dýralæknir að mennt og hefur væiða unnið sem slíkur.