Katrín Júlíusdóttir þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar sagði í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi í gærkvöld að ályktun á landsfundi Samfylkingarinnar varðandi olíleit á Drekasvæðinu fæli ekki í sér kúvendingu í stefnumálum flokksins heldur væri þar höfð til grundvallar svört skýrsla Sameinuðu þjóðanna um stöðu loftslagsmála. Samfylkingin væri í eðli sínu grænn flokkur og Ísland geti gengið fram með góðu fordæmi og lagt sitt á lóð á vogarskálarnar varðandi nýtingu hreinnar orku þó svo kynni að fara að olía fyndist á Drekasvæðinu. Skoða þyrfti líka hvort vinnslan væri þess virði. Mögulegt magn olíu á svæðinu næmi hugsanlega ekki nema 7 daga heimsframleiðslu af olíu.
Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis sem sat gegnt Katrínu í þættinum sagði af og frá að Ísland gæti sagt sig frá þeim skuldbindingum sem búið væri að gera við íslensk og erlend fyrirtæki á Drekasvæðinu, þó svo algerlega væri ófyrirséð hvort hagkvæmt væri fyrir Ísland að hefja olíuleit vegna umhverfissjónarmiða.
Óformleg könnun um afstöðu landsmanna til olíuvinnslu fyrir norðan land sem verið hefur á forsíðunni á hringbraut.is síðustu daga sýnir að heldur fleiri þátttakenda vilja vinnslu en hinir sem telja hana ekki forsvaranlega; 58% voru vinnslunni hlynnt en 42% andvíg.
Fræðast má frekar um olíu og endurnýtanlega orkugjafa í Heimsljósi gærkvöldsins en þáttinn er hægt að nálgast undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is svo og klippur úr þættinum neðar á forsíðunni.