Það var ekki Geir H. Haarde þáverandi forsætisráðhera sem bar höfuðábyrgðina á bankahruninu haustið 2008 heldur forveri hans og þáverandi Seðlabankastjóri, Davíð Oddsson. Þetta fullyrti Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríksiráðherra í stjórn Davíðs á árunum 1991 til 1995 í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun.
Þar fór Jón Baldvin yfir sviði íslenskra stjórnmála fyrr og nú, en fór mikinn þegar kom að uppgjöri við efnahagshrunið eftir hið meinta þensluskeið á fyrstu árum nýrrar aldar. "Ábyrgðarmaðurinn á hruninu situr uppi í Hádegismóum," sagði hann í þættinum. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa rætt þessa fullyrðingu sína við hæstráðandann í móunum, en ábyggilegt væri að Geir H. Haarde, sem þjóðinni "ofbauð að komið hefði verið fyrir landsdóm", ætti ekki sök á hruninun, enda vissu allir að hann "væri frekar meinlaus maður og atkvæðalítill."