Segir brexit ekki auðveldara í sinni fjarveru

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að brottrekstur hennar úr embætti myndi ekki gera úrgönguna úr Evrópusambandinu neitt auðveldari. Hún sagðist ekki vita til þess að meirihluti væri fyrir vantrauststillögu gegn sér.
 

Theresa May var í viðtali á Sky fréttastöðinni í morgun. Umræðuefnið kom lítið á óvart enda standa öll spjót að forsætisráðherra Bretlands vegna áforma um tilhögun úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu. 

Tillögur samninganefnda Breta og Evrópusambandsins, sem kynntar voru í vikunni, hugnast ekki öllum, líkt og við var að búast. Andstöðu er að finna frá þingmönnum allra flokka á þingi, bæði frá þeim sem styðja útgöngu úr Evrópusambandinu og þeim sem eru á móti henni. 

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/segir-brexit-ekki-audveldara-i-sinni-fjarveru