Segir bjarna umlukinn spillingarskýi

\"Fjármálaráðherra fer undan í flæmingi þegar hann er spurður um Borgunarhneyksli Landsbankans,\" skrifar Ólafur Arnarson, þáttastjórnandi á Hringbraut og nýjasti pistlahöfundar samnefns vefjar og segir í fyrstu skrifum sínum þar að Bjarni sé í hugum margra umlukinn spillingarskýi.

Hann bendir á að enda þótt enginn gruni hér Bjarna sjálfan um græsku séu nánir ættingjar hans í hópi þeirra sem fengu að kaupa hlut Landsbankans í Borgun og hafi nú hagnast ævintýralega á þeirri fjárfestingu.

Þetta sé í besta falli óheppilegt fyrir Bjarna á stóli ráðherra: \"Það er ákaflega óheppilegt að á sama tíma og ríkið er ráðandi eigandi flestra stærstu fjármálafyrirtækja landsins, sem eru í óða önn að selja frá sér eignir sem þær hafa leyst til sín frá viðskiptavinum sínum eða eignast á annan hátt, skuli nánir ættingjar fjármálaráðherra landsins vera í hópi umsvifamestu fjárfesta landsins, sem kaupa þessar eignir af ríkisbönkum. Einkar óheppilegt er þegar slíkar sölur fara fram í reykfylltum bakherbergjum og rökstuddur grunur kemur upp um að ekki hafi sannvirði verið engurgoldið fyrir eignirnar.\"

Staða fjármálaráðherra sé því vond, enn afstaða hans í málinu sé þó enn verri.: \"Bankastjóri og helstu stjórnendur Landsbankans eru rúnir trausti. Sama máli gildir um stjórn bankans. Burtséð frá framkomu kaupenda í Borgunarviðskiptunum er ljóst að stjórnendur Landsbankans hafa annað hvort selt eign bankans (ríkisins) vísvitandi á allt of lágu verði og varðar slíkt við hegningarlög eða þeir hafa ekki kynnt sér sannvirði eignarinnar sem þeir seldu. Slík vanræksla kann einnig að varða við hegningarlög. Traust á Landsbankanum verður ekki endurvakið nema skipt verði um stjórn og stjórnendur bankans. Slíkt þolir enga bið,\" skrifar Ólafur og bendir á að engin fjármálastofnun þoli að hafa yfir sér stjórnendur sem séu annað tveggja, skussar eða bófar.

\"Fjármálaráðherra ber í bætifláka fyrir stjórnendur Landsbankans með því að benda á að mikill virðisauki hafi orðið af starfsemi bankans á undanförnum árum og hann hafi skilað ríkulegum arðgreiðslum í ríkissjóð,\" skrifar hann áfram og segir að það hefði ráðherrann betur látið ógert: \"Kannski þekkir hann ekki til þess sjálfur þó hann ætti að gera það en viðskiptavinir Landsbankans vita hvernig þessi mikli virðisauki Landsbankans frá hruni er til orðinn. Starfsmenn bankans hafa af feykilegri hörku gengið fram gegn viðskiptamönnum bankans, bæði einstaklingum og lögaðilum, skrúfað upp lán þeirra og leyst til sín eignir í stórum stíl,\" skrifar Ólafur Arnarson í fyrsta pistli sínum á Hringbraut, en þar heldur hann úti þjóðmálaþættinum Ólöfunum með nafna sínum Ísleifssyni sem frumsýndir eru öll fimmtudagskvöld klukkan 21:30.