\"Þegar horft er á áherslur þessarar ríkisstjórnar í heilbrigðismálum rekst maður á sanngirnin sem felst í því að á Landspítalanum liggja sjúklingar á göngum og í kústaskápum.\"
Þetta skrifar Kári Stefánsson í Fréttablaðinu í gær og fer þar gegn Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra af sama ákafa og hann hefur keyrt í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra á síðustu vikum - en umræðuefnið er vitanlega ónógt framlag úr ríkissjóði í heilbrigðisþjónustu sem Kára ofbýður svo mjög að hann safnað nú liði gegn sofandahætti stjórnvalda í þessum efnum.
Nú hafa 62 þúsund Íslendingar tekið undir herhvöt Kára.
Hann lætur Bjarna heyra það í skrifi dagsins í tilefni af þeim orðum ráðherrans að hann vilji hag heilbrigðiskerfisins sem mestan, en Kári segir það aldeilis ekki ríma við gerðir hans í Arnarhváli. Í reynd og breytni sé Bjarni ekki sammála Kára, hann sé ekki einu sinni sammála sjálfum sér ef gildandi fjárlög séu rýnd og skoðuð.
Bjarni sé bara alls ekki sammála kröfunni um endurreisn heilbrigðiskerfisins: \"Þar misreiknaði hann sig hins vegar pínulítið vegna þess að það er of stutt síðan hann einn og óstuddur vó að kjarna íslensks heilbrigðiskerfis við gerð fjárlaga til þess að nokkur maður trúi honum núna,\" skrifar Kári og segir að það sé eins gott að Bjarni, sá góði maður, breyti um kúrs á næstunni því \"annars verður hann kominn í svo mikla skuld þegar kemur að kosningum að hann verður ekki Borgunarmaður fyrir henni.\"