Segir bhm stjórnað af samfylkingunni

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir mjög óheppilegt að Þórunn Sveinbjarnardóttur gegni stöðu formanns hjá Bandalagi háskólamanna í miðri kjaradeilu þess við ríkisvaldið.


Þetta kom fram í viðtali við hann í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu, en þar sagði Gunnar ætla að það væri pólitískt freistandi fyrir Þórunni, sem er fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og ráðherra og þingmaður þess sama flokks, að blanda pólitík sinni inn í deiluna. Það væri ekki gott í stöðunni að hafa svo hápólitískan formann í fylkingarbrjósti bandalagsins og raun bæri vitni. Hann lét að því liggja í viðtalinu að BHM væri nú stjórnað af Samfylkingunni.


Verkfall Bandalags háaskólamanna hefur nú staðið yfir í rétta tvo mánuði, en það hófst 7. apríl í vor.


Þórunn var kjörinn formaður BHM nokkrum dögum eftir að  verkfallið hófst, en fram að því hafði hún stýrt skrifstofu Samfylkingarinnar um tveggja ára skeið.


Hún kvaðst í samtali við Ríkisútvarpið í morgun ekki ætla að svara þessum ávirðingum Gunnars Braga Sveinssonar.