Athafnamaðurinn Róbert Guðfinnsson á Siglufirði, sem valinn var viðskiptamaður ársins á síðasta ári, húðskammar Arion-banka og stjórnendur hans fyrir að hafa hrifsað til sín AFL sparisjóð og þannig eyðilagt málaferli sjóðsins á hendur þeim banka.
Greinina skrifar Róbert á vefsíðuna siglo.is og þar skefur hann ekki utan af hlutunum: "Undanfarna mánuði hefur það legið í loftinu að Arion banki ætli sér að hrifsa til sín AFL Sparisjóð, bótalaust. Þessi litla lánastofnun sem varð til við sameiningu Sparisjóðs Skagafjarðar og elstu peningastofnunar landsins, Sparisjóðs Siglufjarðar, mun nú renna inn í sjóði erlendra vogunarsjóða undir nafni Arion banka,“ skrifar Róbert og heldur áfram: "Þessi ráðstöfun var mjög sérkennileg þar sem AFL Sparisjóður er í málaferlum við aðaleiganda sinn, Arion banka, út af erlendum lánum sem talin eru ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti. Ef að þessi málaferli vinnast má ætla að það myndist verulegt óráðstafað eigið fé í AFLi Sparisjóði sem borga ætti út í samfélagssjóði í Skagafirði og á Siglufirði. Með þessari aðgerð er Arion banki að koma sér undan þessu máli, því ekki mun bankinn halda uppi málaferlum gegn sjálfum sér.“
Og Róbert, sem unnið hefur þrekvirki í uppbyggingu ferðaþjónustu í heimabæ sínum á síðustu árum svo eftir er tekið, segir loforð um heilbrigðara bankakerfi með heiðarlegum vinnubrögðum í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 ekki hafa ræst: "Upplifun mín á vinnubrögðum Arion banka undanfarin þrjú ár gagnvart þessum litla sparisjóði hafa sannfært mig um það að þetta heilbrigða bankaumhverfi, sem við héldum að yrði byggt upp, er ekki til staðar,“ skrifar hann og heldur fast um pennann, en hann segir að í stjórn Arion banka sé að finna "útbrunna einstaklinga með takmarkaða getu til umbreytinga.“