\"Mér er kunnugt um fjölda tilfella þar sem starfsmenn Landsbankans hafa látið lög og reglu lönd og leið í tilraunum sínum við að sölsa undir sig eignir viðskiptavina bankans.\"
Þetta skrifar hagfræðingurinn Ólafur Arnarson í nýjum pitsli sínum á hringbraut.is og hnykkir á orðum sínum: \"Ég hef séð svart á hvítu hvernig bankinn falsar verðmat á fasteignum skuldsettra viðskiptavina í þeim tilgangi að hafa fé af þeim. Starfsmenn bankans hika ekki við að breyta niðurstöðu verðmats frá viðurkenndum matsmönnum.\"
Ólafur fullyrðir í skrifum sínum að starfs bankans hafi keyrt áfram aðfarar- og fullnustuaðgerðir gegn viðskiptavinum sínum þrátt fyrir að hafa skriflega lofað frestun á slíku. Þeir hafi með öðrum orðum sölsað undir bankann mikinn fjölda eigna ásamt því að keyra fjölda viðskiptavina bankans í gjaldþrot á grundvelli gengislána, sem síðar voru dæmd ólögleg.
\"Það eru ekki bara fyrirtæki og stóreignamenn, sem hafa lent í klónum á starfsmönnum Landsbankans,\" skrifar Ólafur og bætir við. \"Mér er m.a. kunnugt um tilfelli þar sem Landsbankinn stóð í vegi fyrir greiðsluaðlögun hjá eignalausri og tekjulítilli margra barna móður vegna sjálfskuldarábyrgðar sem starfsmenn gamla Landsbankans neyddu hana til að undirgangast vegna skulda eiginmanns hennar þó að alltaf hafi verið ljóst að hún var ekki borgunarmanneskja fyrir fjárhæðinni.\" Upphafleg fjárhæð þess láns, sem var gengislán, hafi verið 7 milljónir króna en bankinn gerði kröfu upp á 28 milljónir í tengslum við greiðsluaðlögunina hjá Umboðsmanni skuldara: \"Síðar kom í ljós að bankanum var fullkunnugt um að lánið var ólöglegt gengislán og í bankanum hafði lánið verið endurreiknað í 8,5 milljónir átján mánuðum áður en 28 milljóna kröfunni var lýst,\" skrifar Ólafur.
Ólafur rekur fleiri dæmi í þessa veru í grein sinni, en segir svo: \"Þrátt fyrir að íslenskir dómstólar hafi verið ótrúlega deigir við að verja rétt venjulegs fólks gagnvart yfirgangi banka á borð við Landsbankann hafa sem betur fer fallið stöku dómar á undanförnum misserum sem gefa von um að þar kunni að rætast úr í framtíðinni.\"
Hann metur það svo að farið sé að hitna mjög undir Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, og Tryggva Pálssyni, stjórnarformanni bankans. Þeirra tími sé bersýnilega liðinn: \"Allur hagnaðurinn sem bankinn hefur skilað frá hruni er blóðleitur. Í ofanálag hefur bankinn verið staðinn að því að vera full rausnarlegur við gamla vini og félaga bankastjórans, sem keyptu Borgunarhlutinn á gjafverði, og Bygg, sem fékk Setbergslandið á slikk.\"
Og hann endar pistil sinn með þessum orðum. \"Vera má að Steinþór Pálsson hafi ekki sjálfur staðið blóðugur upp að öxlum við að höggva viðskiptavini bankans. Það gera aðrir á hans vegum. Það er spurning hvort bankastjórinn fær að gjalda fyrir framgöngu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs og forstöðumanns endurskipulagningar gegn viðskiptavinum bankans? Óbreyttir sjóræningjar ganga oft lengra í ofbeldinu en kafteinninn kærir sig um. Hvernig skyldi það vera í bönkunum? Kannski gulrótin, tvö prósenta eignarhlutur starfsmanna í bankanum sem verðlaun fyrir eignaupptöku af viðskiptavinum bankans, hafi verið full hvetjandi,\" spyr Ólafur Arnarson, hagfræðingur en hann er jafnframt þáttastjórnandi á Hringbraut, ásamt nafna sínum Ísleifssyni í þjóðmálaþættinum Ólöfunum sem er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum.