Segir baltasar til syndanna

Jon Krakauer, Everest-fari og metsöluhöfundur, segir Baltasar Kormáki, leikstjóra Everest, til syndanna í viðtali í LA Times sem birtist í gær.

“It’s total bull,“ hefur blaðið eftir Krakauer um myndina– sem þýða mætti að Everest myndin sé algjört bull.

Virðist sem atriði í myndinni þar sem Krakauer segist með of mikla snjóblindu til að bjarga fólki hafi farið sérstaklega fyrir brjóstið á honum. Hárið rísi hreinlega á höfði Krakauers þegar hann heyri minnst á myndina, samt sé hann kunnur fyrir að vera rólegur maður.

Mynd Baltasars Everest, fjallar um þegar átta fjallgöngumenn létust við að reyna komast niður af fjallinu. Krakauer komst lífs af. Fram kemur að Krakauer upplifði mikið þunglyndi í heilan áratug eftir hildarleikinn. Hann gengur vikulega til sérfræðings og er að vinna úr reynslu sinni.

Baltasar hefur brugðist við gagnrýni Krakauers og skýrt að fyrir sér hafi ekki vakað annað en að sýna fram á varnarleysi fólks í fjallinu, engin ásökun sé gagnvart Krakauer í myndinni, en sá síðarnefndi virðist líta svo á.

Myndin hefur notið geysilegra vinsælda og trónir á toppi aðsóknarmestu mynda. 25.000 Íslendingar hafa séð hana og ljúka flestir lofsorði á.