Segir ákæruna uppspuna frá rótum

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings segist engar hvatir hafa haft til að ræna sjóði bankans fyrir þriðja mann. Þetta kom fram við réttarhöld í milljarða króna fjárdráttarmáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
 

Ítarlega er fjallað um réttahöldin á frétavef RÚV í dag, en þar segir að Hreiðar og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri bankans séu sökuð um fjárdrátt með tveimur millifærslum upp á rúmlega þrjá milljarða króna hvor, í desember 2007 og júní 2008. Féð rataði inn á reikning Lúxemborgarfélagsins Marple sem, samkvæmt ákæru, var í eigu Skúla Þorvaldssonar fjárfestis, en hann neitar að hafa átt félagið.

Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari yfirheyrði Guðnýju Örnu og Hreiðar í morgun að því er fram kemur í frétt á vefnum. Þau segja að millifærslurnar hafi báðar verið til að efna viðskipti samkvæmt samningum. Saksóknari spurði mikið um hvers vegna lítið sem ekkert hefði fundist um viðskiptin í bókhaldi bankans og hvort tiltekin skjöl hefðu verið útbúin eftir á. Hreiðar og Guðný Arna neituðu bæði að kannast við slíkt.

Hreiðar hélt alllanga varnarræðu áður en yfirheyrslan yfir honum hófst. Hann gagnrýndi málatilbúnað sérstaks saksóknara og sagði að ákæran væri uppspuni frá rótum. Hann hefði engar hvatir haft til að ræna sjóði Kaupþings fyrir þriðja mann. Hann velti því upp hvort ákæruvaldið gæti sakað fólk um slíkt án þess að benda á hvaða hvatir hefðu verið að baki, segir í frétt RÚV.

Hreiðar segir að stjórnendum Kaupþings hafi gengið gott eitt til, en hann segist hins vegar ekki geta treyst því að dómararnir trúi honum. Hann segist biðja þá í einlægni að kynna sér gögnin og skoða hvert féð fór. Það hafi allt farið til Kaupþingssamstæðunnar.

Hreiðar segist ekki hafa logið fyrir dómi í Al Thani-málinu, allt sem hann hafi sagt hafi verið satt. Hann segir að Símon Sigvaldason héraðsdómari hafi þurft að ljúga upp á hann sökum til að dæma hann í Al Thani-málinu. Símon er einnig dómari í þessu máli. Þá segir Hreiðar að það sé rangt hjá Hæstarétti að Ólafur Ólafsson í Samskipum hafi átt að njóta hlutdeildar af hagnaði af Al Thani-viðskiptunum. Sú fullyrðing sé svo röng að hann viti ekki hvar hann eigi að byrja að leiðrétta hana.

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi yfirmaður Kaupþings í Lúxemborg, er ákærður fyrir hlutdeild í brotunum. Hann hélt um klukkustundar langa varnarræðu áður en saksóknari byrjaði að yfirheyra hann. Þar fór hann yfir mörg sömu atriði og þegar hann var fyrir dómi í vor vegna ákæru um umfangsmikla markaðsmisnotkun og umboðssvik í Kaupþingi. Hann var sýknaður í því máli, auk þess sem tilteknum ákæruliðum gegn honum var vísað frá dómi, en dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Magnús gagnrýndi framgöngu sérstaks saksóknara og dómstóla undir rannsókn málsins og velti meðal annars fyrir sér tilgangi húsleitar heima hjá honum í Lúxemborg, þar sem ekkert markvert hafi fundist.

Saksóknari spurði Magnús hversu mikil samskipti hans við Skúla Þorvaldsson hefðu verið. Skúli er ákærður fyrir hylmingu í málinu. Skúli, oft kenndur við Hótel Holt, var einn umfangsmesti viðskiptavinur Kaupþings, og stærsti lántaki Kaupþings í Lúxemborg. Samtals námu áhættuskuldbindingar Skúla og tengdra félaga við Kaupþing rúmlega 80 milljörðum króna í október 2008, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Magnús sagði að samskipti sín við Skúla hefðu verið góð. Saksóknari spurði hversu mikil þau hefðu verið, en Magnús bað þá um skilgreiningu á hvað „mikið“ þýddi. Þegar saksóknarinn gekk á Magnús, með frekari spurningum um samskiptin við Skúla, skelltu einhverjir í salnum upp úr, þar á meðal Skúli sjálfur og faðir Magnúsar sem sat á áhorfendabekk. Símon dómari áminnti viðstadda um að hér væri í gangi réttarhald, að því er segir ennfremur í þessari frétt RÚV úr dómssal í dag.