Áhyggjur af mengun silicor óþarfar!

Ný verksmiðja Silicor Materials á Grundartanga í Hvalfirði er fjárfesting að andvirði 120 milljarða króna og framleiðslan sem þar verður er svo gott sem algjörlega laus við mengun.


 

Þetta fullyrtir Terry Jester forstjóri stórfyrirtækisins í samtali við Pál Magnússon í þættinum Þjóðbraut í gærkvöld.  Hún segist skilja að fólk hafi áhyggjur af mengun frá fyrirhugaðri sólarkísilverksmiðju í Hvalfirði, en þær áhyggjur séu óþarfar. Örugg orka á samkeppnishæfu verði, nálægð við álver og fríverslunarsamningur við Kína geri Ísland að ákjósanlegum vettvangi fyrir þessa framleiðslu.

 

Nýja verksmiðjan kallar á 450 ný störf en þar með verða starfsmenn þriggja verksmiðja á Grundartanga orðnir á annað þúsund talsins.

 

Hægt er að horfa á Þjóðbraut í heild sinni eða klippur úr henni á hringbraut.is.