Segir af sér þótt fylgið aukist

Niðurstaða dönsku þingkosninganna í gærdag er snúin þótt meginmyndin sé skýr; bláa blokkin hefur tekið völdin af rauðu blokkinni. Manntaflið í pólitíkinni næstu daga gæti þó verið flókið.

Það ætti kannski að vekja nokkra athygli í íslenskri pólitík að Helle Thorning-Schmidt, leiðtogi danskra sósíaldemókrata axlar nú sín skinn, enda þótt flokkur hennar hafi bætt við sig í þingkosningunum í gær. Hún metur stöðu sína ekki í því ljósi, heldur tapi vinstri flokksbreiðunnar.

Forsætisráðherraefni bláu blokkarinnar er líka nokkur vandi á höndum, en Lars Lökke Rasmussen formaður Venstre er eiginlega einn af tapliðinu í þingkosningunum í gær, en flokkur hans beið í reynd afhroð í kosningunum, tapaði á annan tug þingsæta.

Það er hins vegar danski Þjóðarflokkurinn sem er sigurvegari kosninganna og bætir við sig því fylgi sem Venstre tapar.  Formaður Þjóðarflokksins, Kristian Thulesen Dahl getur því horft fram á bjartari tíð og meira vægi síns flokks í nýrri blárri ríkisstjórn, komist hún til valda. Þær raddir heyrast nefnilega að einhverjar líkur séu á að Lars Lökke leiti yfir miðjuna við myndun nýrrar ríkisstjórnar og horfi þar hugsanlega til sósíaldemókrata.

Enn eru þó mestar líkur taldar á að bláa blokkin taki við völdum - undir sterkari þjóðernisáhrifum en áður.