Segir af sér hjá pírötum

Væringar meðal Pírata halda áfram. Í gærkvöld sagði Erna Ýr Öldudóttir af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir Pírata og þar með formennsku í framkvæmdaráði flokksins. Ástæðan virðist vera ósætti um mál sem varða ráðningu framkvæmdastjóra flokksins en hætt var við ráðningu slíks starfsmanns á döögunum eftir ferli. Halldór Auðar Svansson spyr á Pírataspjallinu á facebook: \"Hvað segja Píratar um þetta? Mér finnst þetta tilefni til naflaskoðunar. Erna hefur verið dugleg við að synda á móti straumnum innan flokksins og það er ekki gott ef slíkt fólk fer að gefast upp. Enda vona ég nú að hún sé ekki alveg hætt.\"

 

Í yfirlýsingu Ernu Ýrar, en nafn hennar hefur stundum komið upp í deilum sem hafa risið vegna skoðanamunar um stefnu og annað, segir m.a.:

\"Ég dreg mig í hlé til að koma í veg fyrir að rýrð verði kastað á Pírata og þau góðu störf sem þeir hafa unnið í tíð þessarar ríkisstjórnar, þar sem mér hefur ekki tekist að skipa mér á bekk með alvöru ræningjum, hverjir ránsfengi sína fela á sjóræningjaeyjum suður í höfum.

Aðrar mikilvægar ástæður eru málefnalegur ágreiningur og sú staðreynd að einstaka meðlimir framkvæmdaráðs hafa ekki sýnt þá samstöðu sem þarf til að takast á við mikilvæg verkefni eins og t.d. tímanlega ráðningu framkvæmdastjóra í afar ört stækkandi flokki með óteljandi áskoranir framundan. Því miður kemur fyrirséð annríki nú í veg fyrir að ég geti sinnt hlutverki mínu áfram af þeim krafti og þeirri alúð sem þarf til að ljúka þeim verkefnum sem liggja fyrir, m.a. vegna þess að framkvæmdastjóri hefur enn ekki verið ráðinn.\"

Einnig segir að trúnaðastörfum hennar hafi Erna Ýr gegnt í sjálfboðavinnu fyrir flokkinn.