Vilhjálmur Þorsteinsson, hugverkahönnuður og gjaldkeri Samfylkingar, sagði seint í gærkvöld af sér embættinu fyrir flokkinn. Aðeins örfáum klukkustundum síðar hafði Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar svarað fréttamanni Rúv að málið væri ekki vandræðalegt fyrir flokkinn.
Vilhjálmur segir í ítarlegri yfirlýsingu sem hann birti um miðnættið í gærkvöld að ein helsta ástæða þess að hann segi af sér trúnaðarembættinu sé til að orkan geti farið í að fylgja þeim málum eftir sem séu brýnust og á þar við aflandsfélög og skattaskjól forsætisráðherrahjónanna og ráðherra en stjórnarandstaðan ætlar að láta smíða tillögu um þingrof á grundvelli hneykslismála innan ríkisstjórnarinnar.
\"Í dag hefur risið mikil umræða vegna þeirrar hreinskilni minnar að benda á, eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum og hefur aldrei verið leyndarmál, að ég á eignarhaldsfélag í Lúxemborg. Af því tilefni er rétt að setja fram nokkra punkta – og smá rúsínu í pylsuendanum,\" hefur Vilhjálmur pistil sinn.
Hann fer síðan í pistli sínum þar sem hann gerir grein fyrir afsögn sinni yfir viðskiptasögu og umsvif. Segir persónulegar skattgreiðslur nákvæmlega þær sömu og ef eignarhaldsfélagið hefði verið íslenskt. Félagið sjálft greiði hærri tekjuskatt í Lúxemborg en það hefði gert á Íslandi, sérstaklega þegar það er haft í huga að söluhagnaður hlutabréfa er ekki skattskyldur í íslenskum félögum. Félagið sé ekki í Lúxemborg vegna skattahagræðis.
Það sem Vilhjálmur kallar rúsínuna í pylsuendanum er eftirfarandi:
\"Ég er svo heppinn að vera vel stæður, og tilheyri eflaust hinu fræga 1%. En ég er líka jafnaðarmaður að lífsskoðun, styð öflugt velferðarkerfi og samhjálp og að þeir sem mest eiga greiði sanngjarnan, og þá meina ég ríflegan, skerf til samfélagsins.
En þrátt fyrir allt sem að ofan er sagt, má augljóst vera að svona flókið eignarhalds- og fjárfestingadæmi hjá gjaldkera Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands er lítt til þess fallið að fókusera umræðuna sem nú stendur yfir um aflandsfélög og skattaskjól á það sem máli skiptir:ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann í landinu.
Ég hef því ákveðið að segja af mér embætti gjaldkera Samfylkingarinnar, og styð stjórnarandstöðuna eindregið í því að kalla fram ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna á sínu fólki.\"