Ole Anton Bieltvedt, stofnandi og formaður Jarðarvina skrifar harðorða grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann gagnrýnir ákvörðun umhverfisráðherra að leyfa rjúpuveiði þetta árið.
Máli sínu til rökstuðnings nefnir Ole að rjúpnastofninn hafi mælst í sögulegu lágmarki á dögunum eða um 248 þúsund fuglar. Aðeins brotabrot af því sem þekktist á framanverðri síðustu öld þegar fjöldinn var í allt að fimm milljónum.
Í því samhengi minnist Ole einnig á ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur að friða rjúpnastofninn árin 2003-2005. Það hafi leitt af sér að rjúpustofninn tvöfaldaðist árið 2004 og 2005.
Um leið gagnrýnir Ole að leyfi hafi verið veitt fyrir veiðum á 25 þúsund rjúpum á síðasta ári sem hefði leitt til þess að stofninn er nú í sögulegu lágmarki.
Þá bendir Ole á að forstjóri Náttúruverndarstofnunar Íslands og helsti rjúpnasérfræðingur landsins að mati stjórnvalda eru báðir rjúpnaveiðimenn.