Segir ábyrgð samtaka atvinnulífsins mikla

Það er ákveðin hætta á ferðum. Menn tala um nýja verkalýðsforystu en mér finnst þetta vera svolítið gamaldags, eins og við séum að fara inn í gamla tíma,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, um stöðuna í kjaraviðræðum. Þorsteinn var í viðtali í Silfrinu og sagði enn fremur:

„Menn mega ekki skella allri skuldinni á verkalýðsforystuna. Hún er að bregðast við aðstæðum í samfélaginu. Ekki er hægt að horfa framhjá því að Samtök atvinnulífsins bera hér mikla ábyrgð með þeirri stefnubreytingu að hverfa frá þeirri kröfu til ríkisstjórnarinnar að semja um stöðuga mynt.“ Þorsteinn vísaði til kjarasamninga árið 2013 þar sem þessi krafa var sett á oddinn.

Nánar á

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/03/03/segir-abyrgd-samtaka-atvinnulifsins-mikla/