Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrum ritstjóri, leggur út af fylgiskönnun Gallup í nýjum bloggpistli.
Þar heldur blaðamaðurinn orðhvati því fram að vísindalegar skoðanakannanir sýni fáséða festu í stuðningi kjósenda við flokka í átta mánuði samfleytt.
„Ríkisstjórnin og flokkar hennar komast ekki neðar en í 35% fylgi og sitja þar fastir. Samt kemur ítrekað fram, að þetta eru bófar og bjánar, sem vilja þjóðinni illt. Flest er þetta siðblint lið, sem reynir að rústa innviðum samfélagsins sem allra mest á sem skemmstum tíma,“ skrifar Jónas.
Ekki rökstyður ritstjórinn þessa skoðun sína en bætir við og er ekki bjartsýnn á þá byltingu sem hann telur að þurfi að eiga sér stað hérlendis.
„Þjóðinni er lífsspursmál að losna undan oki lyginna mannhatara. Þegar 35% kjósenda eru á öndverðum meiði, má ljóst vera, að verkefnið er einkar erfitt. Með frumlegum loforðum getur græðgisliðið að auki vélað 15%, fávitana, í næstu kosningum.“
Jónas hefur undanfarið verið virkur á Pírataspjallinu. Verður ekki annað séð en að hann aðhyllist þær kerfisbreytingar og uppstokkun stjórnarskrár sem Píratar boða. Hann hefur áður skrifað um samtryggingu stjórnarflokkanna og líkt stuðningi kjósenda þeirra við hjarðhegðun.