Hreinn gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands verður að líkindum þrefalt stærri um næstu áramót en hann var í ársbyrjun, þrátt fyrir væntanlega sölu bankans á gjaldeyri í stóru aflandskrónuútboði í haust í tengslum við áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta.
Greining Íslandsbanka segir frá þessu í dag, en þar kemur fram að þetta mikla gjaldeyrisinnflæði síðustu misseri, sem stafar einkum af miklum vexti ferðaþjónustunnar og bata í viðskiptakjörum, hafi gert Seðlabankanum kleift að auka verulega kaup á gjaldeyri.
Greiningardeild bankans bendir meðal annars á að júní síðastliðinn hafi verið metmánuður í kaupum Seðlabankans á gjaldeyri. Bankinn keypti alls 187 milljónir evra á millibankamarkaði, sem samsvarar ríflega 29 milljörðum króna miðað við meðalgengi. Fyrra mánaðarmet var 115 milljónir evra í ágúst 2014. „Gjaldeyriskaupin í júní endurspegla að stórum hluta mikið innflæði gjaldeyris vegna þjónustuviðskipta, og er næsta víst að krónan hefði styrkst hressilega í síðasta mánuði ef ekki hefði verið fyrir inngrip bankans,“ segir í Mmorgunkorni greiningar Íslandsbanka.
\"Það sem af er ári hefur Seðlabankinn keypt 551 milljón evra á millibankamarkaði, og greitt fyrir tæplega 82 milljarða króna. Það er ríflega tvöfalt hærri fjárhæð en á fyrri hluta ársins 2014. Hreinn gjaldeyrisforði Seðlabankans, þ.e. gjaldeyriseignir að frádregnum öllum skuldbindingum í gjaldeyri, hefur frá áramótum aukist úr 306 milljónum evra í 664 milljónir evra,“ segir þar ennfremur en aukningin samsvarar hækkun úr rúmlega 47 milljörum króna í um 95 milljarða króna. Ekki er útlit fyrir að Seðlabankinn dragi úr kaupum á gjaldeyri á næstunni, enda háannatími byrjaður í ferðaþjónustu og útlit fyrir þokkaleg vöruskipti, segir greiningin.