Þann 10. júlí síðastliðinn kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð er kveður á um að Seðlabankanum sé skylt að veita blaðamanni Fréttblaðsins aðgang að upplýsingum er varða fjármögnun bankans á framhaldsnámi fyrrverandi forstöðumanns gjaldeyriseftirlits bankans. Í gær féllst úrskurðarnefndin á beiðni bankans um að fresta réttaráhrifum úrskurðarins.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Kemur fram að úrskurðarnefndin hafi aldrei áður fallist á beiðni sem þessa er varðar upplýsingarétt fjölmiðils.
Forsendur úrskurðarins frá 10. júlí voru meðal annars þær að almenningur hefði meiri hagsmuni af því að skjalið verði gert opinbert en hagsmunir starfsmannsins af að það fari leynt.
Með úrskurðinum í gær féllst nefndin á beiðni bankans um frestun á réttaráhrifum þar til dómur hefur verið kveðinn upp sem geri bankanum skylt að afhenda samninginn. Frestunin er bundin því skilyrði að bankinn vísi málinu til dómstóla innan sjö daga og einnig verður hann að krefjast flýtimeðferðar.
Nefndin rökstyður úrskurð sinn aðallega með vísun til óvissu um túlkun ákvæðis um undanþágu upplýsingaréttar í málum er varða starfsmenn opinberra stofnana. Ekki verði séð að dómstólar hafi tekið afstöðu til ágreinings um túlkun á fyrrgreindu ákvæði upplýsingalaga og því geti verið ástæða til að bera ágreininginn undir dómstóla.