Seðlabankinn rýnir í næstu niðursveiflu

Næsta niðursveifla verður skárri en sú síðasta, ef vel tekst til, að mati sérfræðinga Seðlabanka íslands. Enn sé þó nægt svigrúm til að bregðast við því sem gæti verið í aðsigi.
 
Þetta kemur fram í riti bankans,

 Fjármálastöðugleiki, sem gefið var ut i gær en þar er horft yfir uppbyggingarskeið síðustu fimm ára eftir að hrunið skók samfélagið og dró hagkerfið algerlega saman. Í ritinu segir að

 flestir mælikvarðar efnahagslífsins hafi á þessum tíma færst til betra vegar og er þar meðal annars horft til síðaasta árs þegar verðbólga hafi verið lítil, framleiðsla nálægt getu og nokkur afgangur af viðskiptum við útlönd, en þessi staða megi heita óvenjuleg í hagsögu landsins. Aðstæður hafi enn batnað á þessu ári.

 

Aftur á móti megi sjá fyrstu merki um að spenna sé aftur tekin að myndast og er þar vísað til ástandsins á vinnumarkaði, hækkandi fasteignaverði og fyrstu merkjum um aukið innstreymi fjár frá útlöndum. Þetta gæti orðið uppspretta efnahagslegs óstöðugleika og áhættu í fjármálakerfinu, segir Seðlabankinn.

Hættan sé þó ekki mikil enn, og nægt svigrúm sé til að bregðast við því sem gæti verið í aðsigi. Þá eigi bankarnir nægar eignir umfram skuldir og þeir ættu því að vera vel í stakk búnir til að takast á við næstu erfiðleika. Losun fjármagnshafta og fyrstu merki um vaxandi spennu marki skýr kaflaskil hjá bönkunum. Mikilvægt sé að þeir slaki ekki á árvekni sinni.

Nú skipti meira máli en áður að bankarnir séu vel reknir, svo þeir skili góðri afkomu sem styrki þá gegn áföllum. Enn séu tækifæri til að hagræða. Ef vel tekst til muni næsta niðursveifla fara mildari höndum um heimilin, atvinnulífið og fjármálalífið en gerðist í hruninu.