„Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5%.“
Þessi frétt var að birtast á vef Seðlabankans.
„Þjóðhagsreikningar fyrir fyrstu níu mánuði ársins sýna meiri hagvöxt en Seðlabankinn spáði í nóvember. Vöxtur þjóðarútgjalda var svipaður og spáð var en samsetning hans var önnur. Atvinnuvegafjárfesting jókst meira en einkaneysla minna. Vöxtur útflutnings var einnig meiri en spáð hafði verið og munar þar fyrst og fremst um kröftugan þjónustuútflutning. Metafgangur var á viðskiptajöfnuði á þriðja fjórðungi ársins.“