Seðlabankinn lækkar stýrivexti niður í 3,5 prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósent. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,5 prósent. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd.

Stýrivextir halda því áfram að lækka, en í maí á þessu ári lækkaði peningastefnunefnd vexti bankans um 0,5 prósent og mánuði síðar um 0,25 prósent.

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans, sem birt er í ágústhefti Peningamála, er gert ráð fyrir 0,2 prósent samdrætti í ár, sem er lítillega minni samdráttur en spáð var í maí. Stafar það einkum af þróttmeiri vexti einkaneyslu, en framlag utanríkisviðskipta er einnig hagstæðara þar sem eftirspurn beinist í meira mæli að innlendri framleiðslu og vegur það upp á móti meiri samdrætti í ferðaþjónustu. Hagvaxtarhorfur fyrir næsta ár hafa hins vegar versnað þar sem útlit er fyrir að það taki ferðaþjónustuna lengri tíma að ná sér á strik eftir áföll ársins.

Horfur á að verðbólga hjaðni hraðar

Verðbólga var 3,4 prósent á öðrum fjórðungi ársins en minnkaði í 3,1 prósent í júlí. Undirliggjandi verðbólga hefur þróast með áþekkum hætti. Horfur eru á að verðbólga hjaðni hraðar en spáð var í maí og að hún verði komin í markmið á fyrri hluta næsta árs. Gengi krónunnar hefur hækkað um liðlega 2 prósent milli funda og gjaldeyrismarkaður verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar hafa lækkað í markmið frá síðasta fundi og taumhald peningastefnunnar því aukist lítillega.

Peningastefnan mun á næstunni og sem fyrr ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.