Seðlabankinn lækkar stýrivexti enn frekar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75 prósent. Fyrir mánuði síðan lækkaði Seðlabankinn stýrivexti um 0,5 prósent, þegar vextir fóru niður í 4 prósent.

Frá þessu er greint í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans.

Þar segir að nýjustu upplýsingar um þróun efnahagsmála breyti ekki því mati á efnahagshorfum sem lágu fyrir á síðasta fundi peningastefnunefndar. Hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið í takt við maíspá Seðlabankans og áfram er gert ráð fyrir samdrætti í þjóðarbúskapnum sem mun birtast frekar á komandi mánuðum. Kröftugri einkaneysla á fyrsta fjórðungi og leiðandi vísbendingar gætu þó bent til þess að undirliggjandi þróttur innlendrar eftirspurnar hafi verið meiri en talið var. Á móti eru horfur á að samdráttur í ferðaþjónustu verði meiri.

Einnig kemur fram að verðbólga hafi enn sem komið er verið í samræmi við síðustu spá Seðlabankans en samkvæmt spánni hefur hún náð hámarki og mun hjaðna í átt að markmiði þegar líður á árið. Að mati nefndarinnar gæti frekari lækkun gengis krónunnar þó sett strik í þann reikning. Verðbólguvæntingar hafi lækkað frá því sem þær voru í kringum síðasta fund nefndarinnar. Taumhald peningastefnunnar hefur því aukist á ný.

Nefndin telur að samdráttur í þjóðarbúskapnum muni reyna á heimili og fyrirtæki en segir að viðnámsþróttur þjóðarbúsins sé umtalsvert meiri nú en áður. Svigrúm peningastefnunnar til að mæta efnahagssamdrættinum er einnig töluvert, sérstaklega ef fer sem horfir og verðbólga og verðbólguvæntingar haldast við verðbólgumarkmið. Þá mun boðuð slökun í aðhaldi ríkisfjármála leggjast á sömu sveif.

Að lokum segir í yfirlýsingunni að peningastefnan muni á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.