Seðlabankinn hittir ekki í mark

„Það er ekki nauðsynlegt að vera eitt mesta hávaxtaríki heims. Ef ekki er hægt að lækka vexti núna hvenær þá?“ Þannig spyr Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, í Þjóðbrautarþætti kvöldsins.

„Seðlabankinn hefur á þessum tíma kerfisbundið spáð hærri verðbólgu en raungerst hefur og því viðhaldið hærra raunvaxtastigi en ætlunin var. Nú er svo komið að raunvextir eru nánast hvergi hærri en á Íslandi og hafa verið hátt í fjögur prósent að meðaltali frá ársbyrjun 2014. Við skerum okkur úr,“ segir Ásdís.

Meira í Þjóðbraut í kvöld klukkan 21:00.

-sme