Seðlabanki Íslands vill ekki afhenda Stundinni gögnin sem rannsókn bankans á útgerðarfélaginu Samherja byggir á og vísar til þagnarskyldu starfsmanna bankans um málið.
Í síðasta tölublaði fjallaði Stundin um eitt af þeim gögnum sem rannsóknin á meintum brotum Samherja á lögum um gjaldeyrismál byggði á en í því komu fram hugmyndir um hvernig Samherji gæti notast við félög á lágskattasvæðum til að lækka skiptahlut sjómanna í erlendri starfsemi Samherja og til að stýra því hvar hagnaðurinn af veiðum félagsins myndaðist. Þetta gagn, tölvupóstur frá syni Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, er hins vegar aðeins eitt af fjölmörgum gögnum sem rannsóknin byggði á. Þorsteinn Már Baldvinsson sagði við Stundina að einungis hafi verið um að ræða hugmyndir sem settar voru fram í viðkomandi tölvupósti og að þær hafi aldrei verið framkvæmdar.
Nánar á
https://stundin.is/grein/8552/