Seðlabankastjóri: Menn bara teknir alvarlega ef þeir eru í jakkafötum

Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson er í viðtali um tísku í fylgiblaði Morgunblaðsins í dag um herratísku. Þar er hann meðal annars spurður út í hvernig það kom til að hann fór að klæðast jakkafötum á hverjum degi.

Hann fór ekki að spá í tísku fyrr en hann fór í doktorsnám í hagfræði, svo var það meira þegar hann fór að vinna í Kaupþingi árið 2003.

„Í bank­an­um þurftu menn að klæða sig upp á enda mjög stíf­ar óskrifaðar regl­ur um klæðaburð í fjár­mála­heim­in­um. Ég tók á þess­um tíma þá ákvörðun að ég vildi vera huggu­lega klædd­ur. Ég fór í Boss-búðina þar sem ég átti ekki jakka­föt og keypti mér þrenn föt til skipt­anna. Á þess­um tíma var ég mikið í sam­skipt­um við er­lenda fjár­mála­menn og því mik­il­vægt fyr­ir mig að vera klædd­ur í hlut­verkið,“ sagði Ásgeir.

Ásgeir seg­ir mikla hefð fyr­ir því að fólk klæði sig upp á hér á landi, meðal annars á sunnudögum.

„Það sner­ist meira um virðingu fyr­ir hvíld­ar­deg­in­um en eitt­hvað annað,“ sagði hann. Sagði hann svo að menn væru ekki teknir alvarlega í fjármálaheiminum nema þeir væru í jakkafötum. „Fjár­mála­heim­ur­inn er svipaður að því leyti að ef þú vilt láta taka þig al­var­lega þá mæt­ir þú ekki á peys­unni í inni­skóm á fundi.“