Árni Páll Árnason, fyrrum formaður Samfylkingarinnar náði ekki kjöri í kosningunum. Hann hefur kvatt stjórnmálin.
Árni Páll skrifar á Faceboook: „Það eru forréttindi að fá að starfa á Alþingi Íslendinga og fá að vinna fyrir fólk að þjóðþrifamálum. Ég sendi öllum nýkjörnum þingmönnum hamingjuóskir og bið þeim allrar blessunar í vandasömum störfum á þessu kjörtímabili.
Ég er gæfumaður að hafa fengið traust ykkar til að sitja á Alþingi og í ríkisstjórn og leiða Samfylkinguna. Hugmyndin um umburðarlynda og frjálslynda fjöldahreyfingu fyrir hagsmunum venjulegs fólks heillaði mig svo að ég varði fjöldamörgum árum í hennar þágu og sé ekki eftir einni stund. Nú er þessum kafla lokið og ég þakka traustið, samvinnuna og viðkynninguna við ykkur öll.“