Til snarpra orðaskipta kom á þingi í morgun þegar Björt Ólafsdóttir vildi fá svör frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra vegna lágra veiðigjalda.
Björt staðhæfði að þegar búið væri að draga frá kostnað við starfsemi sjávarútvegsráðuneytis, Hafró og annarra stofnana fengi þjóðin 0 krónur í sinn vasa frá útgerðinni vegna þess hve veiðigjöld væru lág.
Sigmundur brást illa við og sagði útreikninga Bjartar vægast sagt hæpna, þá mætti kalla vúdúhagfræði. Þingmaðurinn virtist alveg gleyma að sjávarútvegurinn skilaði milljarðatugum til samfélagsins með óbeinum hætti.
Björt var ekki ánægð með svör forsætisráðherra og vísaði tali hans um vúdúhagfræði til föðurhúsanna. Í rimmunni varð henni á að kalla forsætisráðherra „karlinn minn“. Sigmundur leit þá þungbúinn strax í átt að Einari K. Guðfinnssyni þingforseta sem bað Björt að tileinka sér þau ávarpspsorð sem þættu við hæfi Alþingis.
Sigmundur sagðist í seinna svari ekki vita hvernig ætti að svara svona „vitleysisfyrirspurn“.