Stjórnarskrárnefnd birti á föstudag drög að frumvörpum með þremur nýjum ákvæðum inn í stjórnarskrána. Ákvæðin varða þjóðaratkvæðagreiðslu, náttúruauðlindir og umhverfis- og náttúruvernd. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist ætla að taka afstöðu til þessa þegar nefndin skilar formlega af sér. Á heildina litið sé niðurstaðan málamiðlun.
Fram hefur komið að ekki virðist hafa náðst samkomulag um ákvæði um framsal fullveldis: \"Það var niðurstaða nefndarinnar að það væri þó of umdeilt þetta mál og áhrifin af því að ráðast í breytingar á þessu væru of óljósar og umdeildar að það væri betra að sleppa því,“ segir Sigmundur Davíð á RÚV.
Hann telur að á Alþingi sé vilji til að klára málið: \"Mér hefur sýnst vera nokkuð víðtækur vilji til þess að ná samkomulagi því að fulltrúar allra flokka í nefndinni hafa náð saman og þá er spurning hvort að þingflokkarnir geri það ekki líka.“