Sdg: verðum að varast neikvæðni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra sagði í áramótaávarpi sínu í gærkvöld að á nýju ári þyrftu Íslendingar að sanna að þeir geti þolað góða tíma. Þeir lifi nú mikið góðæri.

Í ávarpi sínu sagði hann íslenska samfélagssgerð vera góða og nú væru tímar uppgangs sem þjóðin ætti að njóta. Viðvarandi kaupmáttaraukning væri mikilvæg og skilaði þjóðinni meiri velmegun en áður.

Það sem þjóðin þyrfti nú helst að varast væri neikvæðni.