Sdg um búvörusamning: málið er frá

Það er búið að undirrita þessa samninga og málið er frá,” segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag um búvörusamningana. Heildarútgjöld vegna samningsins eru 13 milljarðar króna. Peningunum er vel varið að sögn forsætisráðherra.

Allt önnur viðbrögð koma úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins og verður ekki annað séð en að stjórnarflokkarnir séu komnir í kosningagírinn þótt meira en ár sé í þingkosningar. „Eru menn ekki að grínast?\" spurði þingflokksformaður. Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, í færslu á facebook og á þar við búvörusamninginn. Hún segist vonast til að samningarnir ná ekki í gegn á Alþingi og undir það tekur ritari Sjálfstæðisflokksins.