Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem hætti formlega sem forsætisráðherra í morgun, neitaði blaðamanni Morgunblaðsins um skattagögn þegar eftir því var leitað við lyklaskipti í forsætisráðuneytinu í morgun og Sigurður Ingi Jóhannsson tók við völdum.
Fyrrverandi forsætisráðherra, vildi ekki svara spurningum blaðamanns mbl.is sem tengdust birtingu skattaskýrslna og svokölluðum CFC framtölum þar sem fram koma sundurliðaðar upplýsingar um aflandsfélög.
\"Eftir lyklaafhendingu í forsætisráðuneytinu var Sigmundur spurður hvort hann ætlaði að birta skattaframtöl sín og CFC skýrslur en svaraði hann því til að hann vissi ekki annað en að allt um hann væri þegar birt. mbl.is hefur undanfarna daga ítrekað reynt að að ná tali af Sigmundi og aðstoðarmönnum hans varðandi birtingu á þessum upplýsingum án árangurs,\" segir í frétt mbl.is.
Sigmundur hyggst sitja áfram sem þingmaður en Höskuldur Þórhallsson, samflokksmaður hans í Framsóknarflokknum, gagnrýnir það og vill Sigmund burt úr þinginu eftir hneykslismálið sem fellt hefur Sigmund af stóli sem forsætisráðherra.