Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sagði í þættinum Vikulokunum um helgina að nýfengin vitneskja um fjármál eiginkonu forsætisráðpherra væri mjög óþægileg fyrir samstarfsflokk ráðherrans á þingi.
Vilhjálmur hélt því fram í þættinum að hagsmunatengsl af þessu tagi yrðu að liggja fyrir, svo nátengd sem þau væru pólitískri umræðu um málefni föllnu bankanna. Í þessu ljósi væri það vont að forsætisráðherra hefði ekki upplýst þingheim um kröfur konu hans á hendur bönkunum.
Frosti Sigurjónssson, þingmaður Framsóknarflokksins var einnig í Vikulokunum um helgina og bar hann blak af formanni sínum - og sagði hann gagnrýni á hann óverðskuldaða, einkum og sér í lagi í ljósi þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði gengið manna harðast fram í samningum ríkisvaldsins við kröfuhafa.
Vilhjálmur Bjarnaason kvaðst í þættinum ekki kannast við það að Sigmundur Davíð hefði gengið þar harðar fram en aðrir.