Sdg: löggunni sigað á aftenposten

Hundruð frétta um Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þjóðarinnar hafa verið skrifaðar í kvöld í fjölmiðlum út um allan heim. Í nokkrum tilvikum hafa nöfn Sigmundar Davíðs og Pútíns komið fyrir í sömu fyrirsögninni. Eins og fram kom í Kastljósi í kvöld stendur heimsbyggðin agndofa yfir því að forsætisráðherra Íslands hafi átt félag á Tortólu í skattaskjóli. Þá sýnir viðtal í Kastljósi að forsætisráðherra segir ekki satt þegar gengið er á hann með Wintris-félagið auk þess sem hann sinnti ekki hagsmunaskráningu og seldi eiginkonu sitt félagið á einn dollara. Félagið var í eigu Sigmundar Davíðs þegar Wintris gerði kröfu í þrotabú föllnu bankanna.

Blaðamenn Aftenposten lýsa því í frétt á heimasíðu Afternposten að þegar þeir gerðu tilraun til að ná viðtali af forsætisráðherra fyrir utan heimili Sigmundar Davíðs hafi hann neitað að koma út úr bílnum. Hann hafi farið í símann og skömmu síðar hafi lögreglan komið á vettvang. Tveir lögreglumenn hafi haft afskipti og í skjóli þeirra hafi Sigmundur Davíð hlaupið úr eigin bifreið og inn í hús. Án þess að ræða við norsku blaðamennina.

Frásögninni er lýst hér á eftir skv. Aftenposten en tekið er fram að eiginkona forsætisráðherra hafi verið kurteis.

Aftenposten stoppet av politiet

Statsministeren har kun svart på avsløringene i noen få intervjuer og på sin egen blogg. Da Aftenposten oppsøkte hans bolig søndag formiddag, kommer Gunnlaugsson og hans kone kjørende til huset.

\"\"
Statsminister Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir sto begge oppført som eiere av selskapet Wintris, der Pálsdottirs arv var plassert. Nyttårsaften 2009 kjøpte hun hans halvdel av selskapet for én dollar. Aftenposten møtte dem utenfor deres bolig i Reykjavik søndag.
 

Anna Sigurlaug Pálsdóttir henvendte seg høflig til Aftenpostens journalist, men sier at et intervju «ikke er aktuelt nå». Statsministeren selv ble sittende i bilen, tilsynelatende opptatt i mobiltelefonen.

Noen minutter senere kommer Pálsdottir ut igjen, og Aftenpostens journalist og fotograf gjør seg klar til å forlate stedet da en politibil kommer kjørende. To betjenter forlanger å se pass og pressekort. Etter en kort samtale går politiet bort til statsministeren, som raskt forsvinner inn i sin egen bolig.