Sdg: íhaldsöflin verja verðtryggingu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist finna fyrir sterkum öflum í samfélaginu sem ekki vilja sleppa tökum á verðtryggingunni. Þeirra sé meðal annars að gæta innan Sjálfstæðisflokksins.

Þetta kom fram í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun, en þar hélt hann því fram að ekki einasta íhaldsöflin vildu halda í verðtrygginguna heldur of ákveðnir flokkar í stjórnarandstöðunni og nefndi í því samhengi „flokkinn sem við töluðum um áðan“ og átti þar við Samfylkinguna: \"Enda með mjög sterkar tengingar inn í þann hluta verkalýðshreyfingarinnar sem sjá rautt þegar talað er um þetta,“ sagði Sigmundur og var þá spurður hvort hann ætti við lífeyrissjóðina. Hann jánkaði því og bætti við að hann ætti einnig við aðra forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og viðurkenndi að þar ætti hann við ASÍ. 

Sigmundur var spurður út í umræðuna á Alþingi undanfarið en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að skorast undan því að taka umræðuna um afnám verðtryggingar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir bað í febrúar um sérstaka umræðu um málið og endurtók hún beiðni sína í upphafi þings. Í frétt Vísis um viðtalið segir að hún og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar hafi látið í sér heyra þegar ljóst var að Sigmundur hugðist ekki svara beiðninni. Þá hafi samflokksmenn Sigmundar gagnrýnt hann fyrir að lúffa fyrir Sjálfstæðisflokknum þegar komi að verðtryggingunni en þingmenn Framsóknar hafi einmitt lofað afnámi verðtryggingar strax eftir kosningar 2013.

Sigmundur sagðist í þættinum tilbúinn til þess að ræða verðtrygginguna við hvern sem er: \"Ég vil ræða verðtrygginguna við alla,“ sagði hann, nefndi Samfylkinguna og þáttastjórnendur, en sagði að þar sem Sigríður Ingibjörg væri að biðja um sérstaka umræðu um málið væri það ráðherrann sem væri yfir málaflokknum sem ætti þatr að sitja ætti fyrir svörum. Það væri Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra: \"Það er bara hávaðinn sem kemst í gegn, ekki staðreyndir málanna,“ sagði Sigmundur sem segist vera sá forsætisráðherra sem hafi verið hvað mest viðstaddur umræður á Alþingi á síðustu árum: \"Þarna er verið að hjakka í málinu bara til að fá athyglina,“ sagði ráðherrann í Bítinu en viðtalið má heyra inn á visir.is.