Sdg: hafnatorgið er skipulagsslys

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra sem á að baki menntun í skipulagsfræðum óttast skipuslagsslys ef svokallað Hafnartorg, norðan Lækjartorgs, verður byggt upp með viðlíka stórhýsum og framlagðar teikningar gera ráð fyrir.

Ráðherrann geldur varhug við þessum áætlunum í Morgunblaðinu í gær og segir að með þessum áformum sé vegið að því smáa og fíngerða sem einkenni að mestu sögulegan byggingarstíl höfuðborgarinnar - og enda þótt hún státi af styttri og rýrari byggingarsögu en allrar aðrar evrópskar borgir sé engin ástæða til að fara fram með jafn stórkralalegum hætti og hér sé haldið á stiku og staf.

\"Ef þarna yrði byggt með þeim hætti sem dregið hefur verið upp á þessum myndum yrði það líklega álitið eitt mesta skipulagsslys í miðbæ Reykjavíkur í seinni tíð og jafnvel alla tíð,\" segir ráðherrann við blaðið í gær.

Hann bætir því við að landsmenn eigi ekki mikið af arkitektúr sem hægt sé að kalla hefðbundinn og fagurfræðilegan sem endurspegli einhverja sérstaka sögu eða menningu þjóðarinnar. Miðborgin í Reykjavík einkennist af hinu smáa, gamla og fíngerða: \"Þessvegna eigum við að styrkja það frekar en að vega að því,\" segir Sigmundur Davíð í Mogga í gær, en þar kemur fram að á reitnum verða 80 íbúðir, sjö þúsund fermetrar af skrifstofurými og átta þúsund fermetrar af verslunarrými, en alls verður byggingarmagnið 30 þúsund fermetrar, auk bílakjallara með þúsund stæðum.