Sdg gæti hætt en stjórn starfað áfram


\"Ef vantraust á ríkisstjórn er samþykkt ber henni að fara frá og forsætisráðherra ber að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Vantraust á einstakan ráðherra á hinsvegar ekki að þýða annað en afsögn hans persónulega.\"
Þetta segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði í svari við fyrirspurn Hringbrautar.
Marga fýsir að vita hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir ríkisstjórnina í heild ef vantraust verður samþykkt á Sigmund Davíð. Framsóknarmenn gætu hæglega hrókerað og brugðist þannig við, haldið völdum áfram að kosningum 2017 ef pólitískur vilji er til þess hjá samstarfsflokkunum í stjórninni.


\"Það er svo annað mál hvort slíkt vantraust geti haft áhrif á það stjórnarsamstarf sem í gangi á hverjum tíma og hafi víðtækari áhrif. Það er eflaust breytilegt eftir aðstæðum,\" segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor.


Dæmi hafa komið upp utan landsteinanna vegna svipaðrar stöðu og nú er uppi á Íslandi. Helgi Hrafn, þingmaður Pírata, telur að Sigmundur Davíð eigi að segja skilyrðislaust af sér vegna Tortólamálsins. Hringbraut hefur rætt við fleiri þingmenn sem segja að Sigmundi verði gefinn kostur á að segja af sér, annars sé stórhætta á því fyrir hann að hann verðir \"hrakinn af þingi\" eins og einn þingmanna minnihlutans orðar það.


Í Svíþjóð fluttu Sverigedemokraterna vantrausttillögu á Stefan Löfven forsætisráðherra í janúar 2015. Sú tilllaga var felld eftir því sem fram kemur í svari Grétars Þórs Eyþórssonar við fyrirspurn Hringbrautar.