Schengen þarf að sæta endurskoðun!

Gunnar Bragi Sveinsson, utantríkisráðherra tekur undir orð forsætisráðherra um að aðild Íslendinga að Schengen-svæðinu sæti endurskoðun.

Hann bætir við að á vettvangi Evrópusambandsins liggi fyrir að áraunin sem Shengen-samstarfið hefur orðið fyrir vegna holskeflu flóttamanna muni leiða til breytinga á því.

Þetta og margt fleira kom fram í samtali Ólafanna við Gunnar Braga í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.