„Það hleypur auðvitað eitthvað talsvert á annað hundrað milljónir króna að sjálfsögðu, 17 aðstoðarmenn, 150 til 200 milljónir sem þurfa að bætast við í þennan lið,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, í fréttum RÚV í gærkvöldi.
Aðstoðarfólki þingflokka verður fjölgað í áföngum á næstunni en alls verða til sautján nýjar stöður innan þriggja ára. Steingrímur segir að með þessu sé verið að efla þingið.
Að undanförnu hefur talsvert verið rætt um vanda SÁÁ og þá staðreynd að samtökin vantar um 200 milljónir króna til að losna við biðlista. Svo vill til að þetta er sama upphæð og kostnaðurinn við fjölgun aðstoðarmanna nemur.
Sigurjón M. Egilsson fjölmiðlamaður á Miðjunnibenti á þetta á vef sínum og sagði: „SÁÁ getur gert betur, tekið fleiri í meðferð en nú er gert. Til að svo verði þarf SÁÁ um 200 milljónir til viðbótar. Fjármálaráðherra hefur ekki sýnt neina viðleitni til að koma til móts við SÁÁ“. Sigurjón vitnaði svo í ummæli Steingríms um kostnaðinn við fjölgun aðstoðarmanna og sagði: „Peningarnir eru sannanlega til. Forgangsröðin er það líka.“
Nánar á
http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/11/13/sautjan-nyir-adstodarmenn-kosta-jafnmikid-og-saa-vantar/