Engar skýringar hafa enn fundist fyrir því að sauðfé hefur strádrepist á bæjum á Vestur- og Norðurlandi í upphafi sumars, en við það bætist að ær mjólka mjög illa og þau lömb sem á annað borð lifa dafna mun síður en í venjulegu árferði.
"Þetta er algjört ófremdarástand og margir bændur um allt land hafa lent hryllilega í þessu," segir Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir í Búðardal við Fréttablaðið í morgun og kollegi hans Þórarinn Ingi Pétursson í Eyjafirði, sem jafnframt er formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir málið þegar orðið svo alvarlegt að rannsaka verði hvort eitthvað mun stærra en til dæmis léleg hey eða harðindi vorsins valdi þessum búsifjum.
Margrét Guðnadóttir dýralæknir hefur verið fengin til að rannsaka orsakir þessara hörmunga meðal fjölmargra bænda sem nú þegar hefur valdið þeim miklu tjóni og verða tekin blóðsýni úr hópi áa í dag og þau rannsökuð og greind.