Annasamt er í fjárhúsum landsins þessa dagana. Sauðburður stendur yfir og nálgast hámark á næstu dögum.
Frjósemi er almennt með góðu móti eftir því sem bændur hafa upplýst í samtölum við Hringbraut. Á myndinni að ofan má sjá glænýja þrílembinga í Vogum í Mývatnssveit. Myndin var tekin í morgun og eins og sést hafa sumir bændur viðhaldið þeim góða og forna sið að sinna bústörfum í forláta gúmmískóm sem áður voru fluttir inn til Íslands í miklum mæli frá Tékkóslóvakíu!
Kuldatíð hefur verið á Norðurlandi og haft áhrif á sauðburð. Bændur eygja nú von um betri gæftir og sunnanáttir á næstu dögum. Léttir það mjög sauðburðinn að hægt sé að reka fé á haga í stað þess að hýsa það allan sólarhringinn að sögn bænda.