Í salnum í Kópavogi átti sér stað afar sérstakt atvik þegar Sjálfstæðisflokkurinn fundaði um þriðja orkupakkann. Frummælendur á fundinum voru Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og sitjandi dómsmálaráðherra. Það reyndu fyrrverandi lögreglumenn, merktir Sjálfstæðisflokknum að henda hælisleitanda út með valdi og lugu því að þeir væru starfandi lögregluþjónar.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir þeim ítrekað að setjast niður og sagði að þeir myndu ekki þurfa að hringja á lögregluna þar sem þessir menn væru lögreglan og benti á þá.
„Við erum lögreglan, sestu niður,“
sagði annar mannana við hælisleitandann.Þegar Ármann var spurður út í þetta atvik sagði hann í samtali við Hringbraut: „Ég tók bara svona til orða að þeir væru lögreglan, þetta var bara sagt í hita leiksins. Þetta kom mér allt í opna skjöldu. Ég vissi ekkert hvaða fólk þetta var. Ef þú heldur að þeir hafi verið þarna af því við áttum von á einhverju, við vissum ekki neitt. Ég hélt að þetta væri Íslendingur. Það sem ég átti bara við var að þeir voru komnir á aldur og voru í lögreglunni. Mér varð strax brugðið þegar menn ætluðu að láta þennan fund fara að snúast um eitthvað annað.“
Athyglisvert er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir starfandi dómsmálaráðherra var í salnum. Í Silfrinu í dag sagði Þórdís Kolbrún:
„Auðvitað getur enginn tekið að sér lögregluvald sem ekki hefur lögregluvald.“
Þá sagði Þórdís Kolbrún í Silfrinu:
„Þarna komu upp aðstæður sem komu öllum í opna skjöldu. Við vorum búin að eiga góðan fund og það þurfti einhvern veginn að halda stjórn á fundinum.“ Þá ítrekaði Þórdís Kolbrún að enginn gæti tekið sér lögregluvald án þess að hafa réttindi til slíks.