Þorgerður Katrín tók til máls vegna atkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann sem nú fer fram á Alþingi. Voru þá gerð hróp að Þorgerði sem svaraði fyrir sig með því að hækka róminn og leggja enn frekari áherslu á að orkupakkinn snerist ekki um sæstreng. Sjá má myndskeið af þessu atviki neðst í fréttinni. Þorgerður Katrín sagði:
„Þegar fólk er með vangaveltur og ákveðinn ótta um mál eins og orkupakkann er eðlilegt og sjálfsagt að hlusta og svara. Það var gert, fyrir utan að allt íslenska stjórnkerfið undir stjórn ólíkra flokka, hefur á síðustu níu árum sinnt nákvæmlega því sem það átti að gera, að sinna íslenskum hagsmunum og verja íslenska hagsmuni.“
„Orkupakkinn snýst ekki um sæstreng, hann fer ekki gegn stjórnarskrá. Hann tekur ekki á neinn hátt…“
Þegar þarna var komið við sögu í ræðu Þorgerðar Katrínu var gripið fram í fyrir henni og var hrópað:
„Þið eruð að svíkja þjóðina með því sem þið eruð að gera. Þetta eru landráð og þið skuluð muna það að þið hafið framið glæp. Muniði það.“
Þorgerður hélt þá áfram og lagði þunga áherslu á að málið snerist ekki um sæstreng, heldur myndi orkupakkinn tryggja samkeppni, frelsi og stórnotendur gætu ekki lengur í krafti einokunar sjálfkrafa ódýrt rafmagn á kostnað þjóðarinnar.
Þá var þeim sem gerði hróp að Þorgerði vísað út.