Sauð upp úr á fundi um þriðja orkupakkann: „við erum lögreglan“ - sjáðu myndbandið

Upp kom atvik á fundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag til að ræða um þriðja orkupakkann. Fundurinn var haldinn í Salnum í Kópavogi. Frummælendur á fundinum voru Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og sitjandi dómsmálaráðherra.

Í lok fundarins gátu fundargestir skráð sig á mælendaskrá og spurt ráðherrana spurninga. Á fundinum voru hælisleitendur sem hafa ítrekað óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra og vildu spyrja spurninga um málefni þeirra. Áður en hælisleitandinn gat klárað spurningu sína á ensku tjáði fundarstjóri, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, honum að fundurinn færi fram á íslensku en ekki á ensku. Ráðherra svaraði ekki spurningunni sem borin var fram.

Á myndbandi sem tekið var upp af atvikinu sést hvar tveir menn, merktir Sjálfstæðisflokknum með nafnspjöldum, koma að hælisleitandanum og segjast vera lögreglan. Ármann segir þeim ítrekað að setjast niður og sagði að þeir myndu ekki þurfa að hringja á lögregluna þar sem þessir menn væru lögreglan og benti á mennina. „Við erum lögreglan, sestu niður“ sagði einn mannana við hælisleitandann. Samkvæmt heimildum Hringbrautar eru mennirnir tveir fyrrverandi lögregluþjónar.

Orðaskipti héldu áfram eftir þetta á milli hælisleitandans og Ármanns. Þá sést á myndbandinu hvar annar maðurinn merktur Sjálfstæðisflokknum rífur í hælisleitandann á meðan hann öskrar á hann að yfirgefa svæðið. Hér að neðan má sjá myndbandið af atvikinu: