Sáu ekki gengishrunið

„Sú staðreynd að íslenska krónan hafði frá því í október 2008 og fram til ársloka 2009 fallið gagnvart öllum helstu myntum virðist hafa farið framhjá samningamönnum ríkisins og sú staðreynd að meint áhætta hafði á því tímabili þegar ríkið bar ábyrgð á rekstri bankanna reynst ávinningur,“ segir meðal annars í skýrslu meirihluta fjárlaganefndar.

Þetta er ótrúlegt. Annars vegar ef samningafólkið, sem allt starfaði við enfahagsmál þjóðarinnar, hafi farið á mis við þær miklu breytingar sem urðu á gengi krónunnar á þessum lögum tíma, eða þá að Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauksdóttir hafi með einhverjum hætti komist að rangri niðurstöðu um hæfi fólksins.

Hvort sem rétt er, er stór merkilegt.